Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   sun 22. apríl 2018 17:08
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Conte ánægður en ætlar núna að fara í hápressu
Mynd: Getty Images
„Við áttum skilið að vinna leikinn og komast í annan bikarúrslitaleik okkar í röð," sagði Antonio Conte, stjóri Chelsea, eftir 2-0 sigur á Southampton í dag.

„Við erum mjög ánægðir að komast í úrslitaleikinn, sérstaklega fyrir hönd stuðningsmanna okkar, þeir eiga þetta skilið."

Chelsea mætir Man Utd í bikarúrslitunum þann 19. maí næstkomandi.

„Nú er markmið okkar að setja pressu á liðin fyrir ofan okkur í ensku úrvalsdeildinni og reyna að ná sæti í Meistaradeildinni. Við ætlum að enda tímabilið eins vel og við getum."

„Það er mikilvægt fyrir okkur að komast í úrslit í þessari keppni þar sem við erum búnir að vera í vandræðum í deildinni."

„Við erum ekki í þeirri stöðu þar sem við getum tekið bikarinn fram yfir deildina. Við verðum að reyna að vinna síðustu fjóra deildarleiki okkar til að komast í Meistaradeildina."
Athugasemdir
banner
banner