Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   sun 22. apríl 2018 20:30
Magnús Már Einarsson
Draumaliðsdeildin - Rúnar Alex velur sitt lið
Liðið hjá Rúnari Alex.  Smelltu á myndina til að sjá hana stærri.
Liðið hjá Rúnari Alex. Smelltu á myndina til að sjá hana stærri.
Mynd: Draumaliðsdeild Eyjabita
Rúnar Alex Rúnarsson,
Rúnar Alex Rúnarsson,
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Einungis fimm dagar eru í að Pepsi-deildin hefjist. Draumaliðsdeild Eyjabita er opin og við hvetjum fólk til að skrá lið sitt til leiks í tæka tíð.

Smelltu hér til að taka þátt í leiknum!

Rúnar Alex Rúnarsson, markvörður hjá Nordsjælland og íslenska landsliðinu, er klár með sitt lið fyrir sumarið.

Markið: Ákvað að treysta á reynsluna þegar kom að valinu á markmanni. Gulli er alltaf að fara skila sínu.

Vörnin: Ég vil spila sóknarbolta og það endurspeglast í liðsvalinu, spila með 3 sóknarbakverði sem munu eiga þátt í helling af mörkum í sumar, bæði með stoðsendingum og mörkum.

Miðjan: Fannst erfiðast að velja miðjumenn enda ótrúlega margir góðir leikmenn sem komu til greina en ég held að þessi miðja geti ekki klikkað. Aron, Siggi og Hallgrímur eru allt leikmenn sem skora alltaf sín mörk en leggja líka upp fyrir liðsfélaga sína sem er mjög mikill kostur. Val mitt á Steina var einfaldlega vegna þess að hann er bullandi sóknarmaður skráður sem miðjumaður og hann er að fara skora nóg fyrir Stjörnuna í sumar.

Sóknin: Bjerregaard er leikmaður sem getur gert allt, hann mun skila mér nóg af stigum og svo held ég að Glenn og Castillon munu reima á sig markaskóna í sumar.

Smelltu hér til að taka þátt í leiknum!

Sjá einnig:
Andri Rúnar Bjarnason velur sitt lið
Orri Sigurður Ómarsson velur sitt lið
Böddi löpp velur sitt lið
Lucas Arnold velur sitt lið
Tómas Þór velur sitt lið
Hörður Björgvin velur sitt lið
Gunnar Jarl velur sitt lið
Benedikt Bóas velur sitt lið
Athugasemdir
banner
banner
banner