Markvörðurinn Ederson kom til Manchester City síðasta sumar frá Benfica í Portúgal, hann hefur á sínu fyrsta tímabili á Englandi orðið Englandsmeistari og unnið enska deildabikarinn.
„Ég er mjög ángæður með hvernig þetta hefur þróast, allt hefur gerst svo hratt. Á fyrstu tveimur árum mínum hjá Benfica fékk ég að spila mikið og á þessu tímabili hef ég verið reglulega í byrjunarliði Manchester City það er draumi líkast," sagði Ederson.
„Og að vinna titilinn, að vera á lista yfir bestu ungu leikmennina og að vera hluti af þessu liði sem hefur fengið fæst mörk á sig í vetur, ég get ekki sagt annað en að þetta tímabil hafi eiginlega verið fullkomið. "
„Ég er mjög ánægður hjá Manchester City. Fjölskyldan mín er einnig ánægð hérna og við erum búin að koma okkur vel fyrir, við erum algjörlega í skýunum. "
Athugasemdir