Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   sun 22. apríl 2018 17:56
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Frakkland: Fanndís á bekknum þriðja leikinn í röð
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Landsliðskonan Fanndís Friðriksdóttir byrjaði á varamannabekknum hjá Marseille í stóru tapi gegn Paris Saint-Germain í úrvalsdeild kvenna í Frakklandi þennan sunnudaginn.

Þetta er þriðji leikurinn í röð sem Fanndís byrjar á bekknum.

Hún var þó sett inn á í hálfleiknum þar sem staðan var 2-0 fyrir PSG. Höfuðborgarliðið var ekki hætt og setti tvö mörk til viðbótar í seinni hálfleiknum. Lokatölur 4-0.

Þetta eru ekki góð úrslit fyrir Marseille sem er á botni frönsku deildarinnar, fimm stigum frá öruggu sæti þegar þrír leikir eru eftir.

Sjá einnig:
Fanndís: Gengur vægast sagt hræðilega



Athugasemdir
banner
banner