Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   sun 22. apríl 2018 20:43
Ívan Guðjón Baldursson
Ítalía: Napoli vann á Juventus Stadium
Mynd: Getty Images
Juventus 0 - 1 Napoli
0-1 Kalidou Koulibaly ('90)

Kalidou Koulibaly galopnaði titilbaráttuna þegar hann stangaði knöttinn í netið undir lokin er Napoli heimsótti Juventus til Tórínó.

Napoli gjörsamlega átti leikinn og stjórnaði gangi mála frá upphafi en fann ekki miklar glufur á sterkri vörn heimamanna.

Gianluigi Buffon átti frábæran leik á milli stanganna en kom engum vörnum við þegar Koulibaly losaði sig frá Medhi Benatia og skallaði hornspyrnu Jose Callejon beint í netið.

Napoli verðskuldaði sigurinn og er núna einu stigi á eftir Juve, þegar fjórar umferðir eru eftir.

Bæði lið eiga erfiða útileiki í næstu umferð. Juve heimsækir Inter í risaslag og Napoli fer til Flórens.
Athugasemdir
banner
banner