Manchester City er búið að tryggja sér Englandsmeistaratitilinn og er úr öllum öðrum keppnum.
Pep Guardiola segist vera með góða leið til að halda mönnum einbeittum út tímabilið; reyna að bæta sem flest úrvalsdeildarmet.
Pep Guardiola segist vera með góða leið til að halda mönnum einbeittum út tímabilið; reyna að bæta sem flest úrvalsdeildarmet.
„Við erum búnir að vinna deildina, núna eltumst við bara við metin. Það er alltaf hægt að finna eitthvað til að brenna fyrir, í fótbolta þarf maður stöðugt að bæta sig," sagði Pep eftir stórsigurinn.
„Að eltast við metin heldur leikmönnum einbeittum. Það sást í dag að strákarnir voru hungraðir í þennan sigur, þeir spiluðu ótrúlega vel.
„Swansea hefur verið að gera vel undir Carlos Carvalhal og náði góðum úrslitum gegn Arsenal og Liverpool. Þetta eru erfiðir andstæðingar."
Athugasemdir