Grindavík og Breiðablik mættust í gær en bæði liðin eru að undirbúa sig fyrir Pepsi-deildina sem hefst á föstudaginn.
Breiðablik sigraði með þremur mörkum gegn einu marki heimamanna í Grindavík.
Sveinn Aron Guðjohnsen, Arnþór Ari Atlason og Arnór Gauti Ragnarsson skoruðu mörk gestanna í Breiðablik en Rene Joensen mark heimamanna.
Grindavík fær FH í heimsókn í 1. umferð Pepsi-deildarinnar en Breiðablik fær hins vegar ÍBV í heimsókn.
Hér að neðan má sjá mörkin úr leiknum í gær.
Athugasemdir