Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   sun 22. apríl 2018 15:33
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Þýskaland: Alfreð skoraði og lagði upp í endurkomunni
Mynd: Getty Images
Augsburg 2 - 0 Mainz
1-0 Michael Gregoritsch ('29 )
2-0 Alfred Finnbogason ('90 )

Alfreð kom aftur inn í byrjunarlið Augsburg í dag eftir að hafa glímt við erfið kálfameiðsli. Alfreð hafði ekki leikið fótboltaleik fyrir Augsburg síðan í lok janúar áður en hann sneri aftur í dag.

Það hefur vantað eitthvað upp á í sóknarleik Augsburg á meðan Alfreð hefur verið í burtu. Hann kom inn með kraft og lagði upp fyrsta mark leiksins Michael Gregoritsch á 29. mínútu.

Í uppbótartíma bætti Alfreð svo við öðru marki Augsburg og kórónaði flottan leik sinn, hans 12. deildarmark á tímabilinu.

Augsburg er komið aftur á sigurbraut en liðið er í 11. sæti þýsku úrvalsdeildarinnar þegar þrír leikir eru eftir.



Athugasemdir
banner
banner
banner