Andy Carroll verður frá vegna hælmeiðsla í sumar og missir því af stórum hluta undirbúningstímabilsins.
Carroll þarf ekki að fara í aðgerð en verður frá í að minnsta kosti þrjá mánuði, en það var greint frá því á dögunum að Liverpool er búið að samþykkja 15 milljón punda tilboð West Ham í leikmanninn.
Carroll þarf ekki að fara í aðgerð en verður frá í að minnsta kosti þrjá mánuði, en það var greint frá því á dögunum að Liverpool er búið að samþykkja 15 milljón punda tilboð West Ham í leikmanninn.
Carroll á eftir að samþykkja samningstilboð West Ham og ekki er ljóst hvort hann muni gera það eða bíða og leita á önnur mið.
Carroll var keyptur til Liverpool af Kenny Dalglish á metfé fyrir breskan leikmann, eða 35 milljónir punda, í janúar 2011 og hefur verðmiðinn hríðfallið síðan þá.




