Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
banner
   mið 22. maí 2013 06:00
Hafliði Breiðfjörð
Birna Berg snýr aftur hjá FH í kvöld - Frítt á leikinn
Kvenaboltinn
Birna Berg er í leikmannahópi FH í kvöld.
Birna Berg er í leikmannahópi FH í kvöld.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Birna Berg Haraldsdóttir fyrrverandi unglingalandsliðsmarkvörður Íslands snýr aftur í Pepsi-deildina í kvöld og er í leikmannahópi FH sem mætir Aftureldingu í Kaplakrikanum.

Birna sem er 20 ára gömul landsliðskona í handbolta hefur ekki spilað fótbolta síðan hún spilaði með ÍBV í láni frá FH sumarið 2011 en eftir það meiddist hún í handboltaleik og var lengi frá.

Hún hóf meistaraflokksferli sinn með FH sumarið 2008 og hefur í heildina spilað 58 meistaraflokksleiki og skorað eitt mark sem kom á hennar fyrsta sumri á 15. aldursári.

Hún hefur spilað 37 landsleiki með U19 og U17 ára landsliðum Íslands.

Leikurinn hefst klukkan 19:15 í Kaplakrika og aðgangur áhorfenda er frír á hann í boði Icelandair Cargo.
Slapp
banner