Heimild: Sky
Brendan Rodgers, stjóri Liverpool, býst við að Luis Suarez muni leika áfram með liðinu á næsta tímabili.
,,Allir leikmenn hafa sinn verðmiða en það er klárlega engin pressa á félaginu að selja hann. Við erum að reyna að bæta við gæðin svo hann er ekki til sölu," sagði Rodgers.
,,Ég er ekki í vafa um að það verður áhugi á honum í sumar því hann er á meðal þeirra bestu."
,,Það er lítil prósenta leikmanna sem eru í heimsklassa og hann er í þeim hópi svo ég held að þetta verði ekki ósvipað því þegar ég kom síðasta sumar, félög eiga eftir að sýna áhuga."



