Paolo Di Canio, knattspyrnustjóri Sunderland á Englandi, ætlar sér ekki að taka langan tíma í að laga agavandamálin innan félagsins, en það eru þó ekki allir hrifnir af hans formúlu, þar á meðal kærasta Phil Bardsley.
Margt hefur gerst á þeim tíma sem Di Canio hefur verið hjá félaginu. Hann tók við af Martin O'Neill og hefur þurft að snúast í mörgu frá því.
Á dögunum birtust myndir af Phil Bardsley, varnarmanni Sunderland, liggja í spilavíti, umkringdur peningum, en þá voru nokkrir miðlar sem héldu því fram að Bardsley hafi hreinlega verið dauðadrukkinn.
Di Canio ákvað að hafa hann ekki í leikmannahópnum fyrir síðasta leikinn gegn Tottenham Hotspur og í kjölfarið bannaði hann leikmanninum að æfa með félaginu, sem og Matthew Kilgallon, varnarmanni liðsins.
Hann hefur þá sektað sjö leikmenn á fáeinum dögum, sem hefur orðið til þess að þeir leikmenn hafa kvartað til enska knattspyrnusambandsins þar sem þeim þykir sektirnar háar og ósanngjarnar.
Ítalski stjórinn hætti ekki þar, heldur hefur hann bannað síma á æfingasvæðinu og þá bannaði hann sykur og tómatsósu í mötuneyti félagsins. Hann hraunaði þá yfir agann sem var hjá félaginu og að hans helsta markmið sé að bæta úr því.
,,Phil hefur ekki nauðgað neinum eða drepið neinn, sumir þurfa að hætta að haga sér eins og dramadrottning," sagði fyrirsætan, Tanya Robinson, sem er jafnframt maki Bardsley.





