Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
banner
   mið 22. maí 2013 17:10
Brynjar Ingi Erluson
Heimir Hallgrímsson stýrir kvennaliði ÍBV í kvöld
Kvenaboltinn
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Heimir Hallgrímsson, aðstoðarþjálfari íslenska karlalandsliðsins, mun taka það að sér að stýra kvennaliði ÍBV í kvöld er liðið fær Þrótt í heimsókn í Pepsi-deildinni.

ÍBV og Þróttur mætast á Hásteinsvelli klukkan 18:00 í kvöld, en það vekur mikla athygli að Heimir stýrir liðinu.

Jón Ólafur Daníelsson, þjálfari liðsins, er í banni í kvöld, en hann fékk rautt spjald undir lok leiksins er liðið mætti Val í síðustu umferð.

Heimir hleypur í skarðið fyrir hann gegn Þrótturum, en hann þjálfaði kvennalið ÍBV fyrir nokkrum árum og náði þar góðum árangri.

Þá þjálfaði hann karlalið ÍBV eins og flestum er kunnugt áður en hann tók að sér stöðu sem aðstoðarþjálfari landsliðsins.

Hægt er að sjá leikskýrsluna fyrir leikinn með því að smella hér
Slapp
banner
banner