Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
banner
   mið 22. maí 2013 16:30
Magnús Már Einarsson
Hinn stóri og stæðilegi Akinfenwa yfirgefur Northampton
Framherjinn stóri og stæðilegi Adebayo Akinfenwa mun ekki fá nýjan samning hjá Northampton Town.

Akinfenwa er 100 kíló og rífur upp 175 kíló í bekkpressu en hann hefur vakið mikla athygli í ensku D-deildinni undanfarin tímabil.

Akinfenwa skoraði 17 mörk í ensku D-deildinni í vetur en hann var á bekknum þegar Northtampton tapaði 3-0 gegn Bradford í úrslitaleik umspilsins um helgina.

,,Ég valdi ekki að yfirgefa Northampton en ég óska þeim alls hins besta í framtíðinni," sagði Akinfenwa á Twitter síðu sinni.

,,Ég vil þakka starfsfólkinu, leikmönnum og sérstaklega stuðningsmönnum NTFC fyrir eftirminnilegan tíma, þetta var sérstakt. Guð blessi ykkur öll."

Á dögunum stöðvaði lögreglan Akinfenwa og neitaði að trúa því að hann væri fótboltamaður eins og kom fram í frétt fyrir helgi.

Sjá einnig:
Lögreglan trúði ekki að Akinfenwa spilaði fótbolta
100 kílóa framherji í ensku D-deildinni - Tekur 175 kíló í bekk
Slapp