,,Ég er hundsvekktur. Við byrjuðum leikinn betur og áttum að klára hann í fyrri hálfleik," sagði Jóhann Kristinn Gunnarsson eftir jafntefli Þórs/KA og Vals á Akureyri í dag.
,,Við mættum í leikinn með það hugarfar að vinna hann og vorum á ágætis leið með það í fyrri hálfleik en mættum ekki í seinni hálfeikinn."
,,Það er náttúrulega skandall hjá ríkjandi meisturum og við vitum það best sjálfar. Þessi leikur var endurtekning á leiknum gegn FH í fyrstu umferð þar sem við vorum miklu betra liðið en náum ekki að slútta leiknum. Þrátt fyrir að við höfum fengið stig þá er tilfinningin svipuð og eftir tapleik." Þrír af fyrstu fjórum leikjum Þórs/KA hafa verið heimaleikir en liðinu hefur ekki enn tekist að sigra á heimavelli.
Fyrir tímabilið fékk Þór/KA markvörðinn Katelyn Savage til liðsins en hún meiddist strax í fyrsta leik. Því var brugðið á það ráð að fá nýja stúlku til landsins, Victoriu Alonzo, en hún hefur enn ekki skilað sér. Um málið hafði Jóhann þetta að segja.
,,Ætli hún hafi ekki týnst í pósti? Í augnablikinu stoppar þetta í einhverju pappírs búrókrata dóti en um leið og hún fær atvinnuleyfi fljúgum við henni til landsins."
Viðtalið má sjá í heild sinni hér að ofan.






















