Heimild: Heimasíða KA
Búið er að færa leik KF og KA í 1. deild karla á laugardag en liðin áttu upphaflega að eigast við á morgun.
Mikill snjór hefur verið á Norðurlandi í vor en Ólafsfjarðarvöllur hefur nú verið mokaður og þrátt fyrir að stúkan og umhverfi vallarins sé á kafi í snjó þá er stefnt á að spila á laugardag.
Mikill snjór hefur verið á Norðurlandi í vor en Ólafsfjarðarvöllur hefur nú verið mokaður og þrátt fyrir að stúkan og umhverfi vallarins sé á kafi í snjó þá er stefnt á að spila á laugardag.
Leikurinn mun fara fram klukkan 14:00 en um er að ræða fyrsta heimaleik KF í 1. deildinni í sumar.
KF hefur átt í erfiðleikum með æfingar að undanförnu vegna snjókomu á Ólafsfirði og Siglufirði eins og Lárus Orri Sigurðsson þjálfari KF greindi frá í viðtali við Fótbolta.net eftir 1-1 jafntefli gegn Leikni á laugardag.
Hér til hliðar má sjá mynd af Ólafsfjarðarvelli frá því í gær.

