Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
banner
   mið 22. maí 2013 13:09
Magnús Már Einarsson
Heimild: Sky 
Manuel Pellegrini hættir með Malaga
Manuel Pellegrini hefur staðfest að hann muni hætta sem þjálfari Malaga eftir tímabilið.

Pellegrini er talinn langlíklegastur til að taka við Manchester City eftir að Roberto Mancini fékk að taka pokann sinn.

,,Ég og þjálfaralið mitt munum hætta hjá Malaga," sagði Pellegrini við Marga í dag.

Hinn 59 ára gamli Pellegrini tók við Malaga árið 2010 en liðið er í sjötta sæti í spænsku úrvalsdeildinni þegar tveir leikir eru eftir.

Pellegrini er frá Síle en hann hefur meðal annars þjálfað Real Madrid og Villarreal á ferli sínum.
Slapp
banner
banner