Gríðarlegt áfall fyrir Borussia Dortmund en liðið verður án Mario Götze í úrslitaleik Meistaradeildarinnar á Wembley gegn Bayern München á laugardaginn.
Þetta staðfesti félagið í dag en þessi tvítugi miðjumaður getur ekki verið með vegna lærismeiðsla sem hann hlaut í leik gegn Real Madrid í undanúrslitum keppninnar.
Þetta staðfesti félagið í dag en þessi tvítugi miðjumaður getur ekki verið með vegna lærismeiðsla sem hann hlaut í leik gegn Real Madrid í undanúrslitum keppninnar.
Dortmund hélt í vonina um að Götze myndi jafna sig fyrir úrslitaleikinn og æfði hann með liðinu á ný í gær. En vonirnar urðu að engu því eftir klukkutíma varð hann að hætta æfingunni.
,,Úrslitaleikurinn var mitt stóra markmið, og á síðustu vikum hef ég verið að berjast fyrir því. Mér þykir það óhemju leitt að geta ekki hjálpað liðinu í þessum mikilvæga leik," sagði Götze.
,,Ég hef fulla trú á liðinu og mun auðvitað fara með til London til að styðja liðið utan vallar."
Þar með er ljóst að Götze er búinn að spila sinn síðasta leik fyrir Dortmund en hann gengur í raðir Bayern München í sumar.

