Heimild: Vísir.is
Birna Berg Haraldsdóttir, markvörður FH, gerði ótrúlega skrautleg mistök sem kostuðu mark í leik liðsins gegn Aftureldingu í kvöld. Leikurinn var sýndur beint á Vísi og þar er hægt að sjá atvikið.
Smelltu hér til að horfa á atvikið
Smelltu hér til að horfa á atvikið
Eftir mistökin minnkaði Afturelding muninn í 3-1 en leikurinn endaði með sigri FH 4-1 svo Birna getur prísað sig sæla að þau reyndust ekki dýrkeypt.
Þetta var fyrsti leikur Birnu með FH í sumar en hún hefur æft með liðinu undanfarnar vikur. Kom hún í markið þar sem Nanna Rut Jónsdóttir hafði fengið á sig sjö mörk í síðustu umferð.
Þó Birnu hafi mistekist að kasta í kvöld þá stundar hún einnig handbolta og gerði fyrr í þessum mánuði samning við Sävehof í Svíþjóð á þeim vettvangi.




