Breiðablik fékk Selfoss í heimsókn í Pepsi-deild kvenna og voru bæði lið taplaus fyrir leikinn, Selfoss með sjö stig og Breiðablik níu.
Blikastúlkur lögðu Selfyssinga af velli með fjórum mörkum gegn einu og er þetta fyrsta tap Selfoss í Pepsi-deild kvenna.
Blikastúlkur lögðu Selfyssinga af velli með fjórum mörkum gegn einu og er þetta fyrsta tap Selfoss í Pepsi-deild kvenna.
Stjarnan lagði þá stigalaust botnlið HK/Víkings með sex marka mun en Danka Podovac skoraði fjögur af mörkum Stjörnunnar.
FH lagði þá Aftureldingu örugglega á heimavelli og eru bæði lið með fjögur stig eftir fjóra leiki.
Breiðablik 4 - 1 Selfoss
1-0 Aldís Kara Lúðvíksdóttir ('8)
2-0 Rakel Hönnudóttir ('11)
2-1 Guðmunda Brynja Óladóttir ('32)
3-1 Björk Gunnarsdóttir ('52)
4-1 Hlín Gunnlaugsdóttir ('68)
Stjarnan 6 - 0 HK/Víkingur
1-0 Danka Podovac ('17)
2-0 Danka Podovac ('42)
3-0 Danka Podovac ('46)
4-0 Megan Manthey ('52)
5-0 Harpa Þorsteinsdóttir ('57)
6-0 Danka Podovac ('87)
FH 4 - 1 Afturelding
1-0 Ashlee Hincks ('22)
2-0 Teresa Marie Rynier ('28)
3-0 Ashlee Hincks ('32)
3-1 Sigríður Þóra Birgisdóttir ('72)
4-1 Guðrún Höskuldsdóttir ('91)



