Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
   mið 22. maí 2013 07:30
Brynjar Ingi Erluson
Razvan Rat til West Ham (Staðfest)
West Ham United hefur staðfest kaupin á Razvan Rat, en hann kemur frá Shakhtar Donetsk í Úkraínu.

Rat, sem er 31 árs gamall bakvörður, hefur spilað í Úkraínu síðustu tíu árin, en hann hefur samtals unnið fimmtán titla í landinu.

Samningur hans við Shakhtar átti að renna út í sumar og ákvað úkraínska félagið ekki að gera nýjan samning við Rat. West Ham nýtti sér það því og hefur gert eins árs samning við leikmanninn.

Hann kemur til félagsins 1. júlí, en West Ham ku vera á eftir fleiri leikmönnum. Allt er útlit fyrir að Andy Carroll verði keyptur frá Liverpool. Þá eru þeir Maynor Figueroa hjá Wigan og Danny Simpson hjá Newcastle á óskalista félagsins.
Slapp
banner
banner