Landsliðsmaðurinn Sölvi Geir Ottesen ætlar að kveðja félaga sína í FC Kaupmannahöfn á föstudag þegar komið er að sumarfríi. Hann hefur verið úti í kuldanum á tímabilinu og hyggst yfirgefa dönsku úrvalsdeildina.
„Ég verð ekki áfram hjá liðinu og það er nánast útilokað að ég fari í annað félag hér í Danmörku. Hér hef ég unnið danska meistaratitilinn, bikarkeppnina og spilað í Meistaradeildinni. Ég er búinn að upplifa þetta allt," segir Sölvi við Tipsbladet.
Sölvi sló fyrst í gegn með SönderjyskE í Danmörku og var þá fenginn til FCK þar sem hann lék lykilhlutverk. Á þessu tímabili hefur hann þó aðeins verið í aukahlutverki. Hann hefur verið orðaður við félög í Svíþjóð og víðar.
„Það er ekkert frágengið en ég er opinn fyrir öllu og skoða þau tilboð sem bjóðas," segir Sölvi.



