Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
   mið 22. maí 2013 19:00
Elvar Geir Magnússon
Sonur David Beckham vonast eftir samningi hjá QPR
Eftir að hafa æft með unglingaliði Chelsea án árangurs fyrr á þessu ári hefur Brooklyn, elsti sonur David Beckham, hafið æfingar hjá öðru Lundúnaliði, QPR.

Einhverjir fjölmiðlar höfðu sagt að hinn fjórtán ára Brooklyn væri kominn með samning hjá QPR en það er ekki rétt. Hann er enn ekki orðinn hluti af akademíu félagsins en hefur fengið leyfi til að æfa með þeim.

Veðbankar á Englandi eru þegar farnir að bjóða upp á þann möguleika á að veðja um það hvort Brooklyn muni leika fyrir enska landsliðið. 12-1 er stuðullinn á það og 9-2 á að hann muni einn dag leika í úrvalsdeildinni.

Í myndbandinu hér að neðan má sjá Brooklyn í fótbolta með Thiago Silva og bræðrum sínum á æfingu PSG nýlega. Brooklyn kemur í seinni hluta myndbandsins.


Slapp
banner
banner
banner
banner