Helgi Valur Daníelsson var að vanda í byrjunarliði AIK en liðið gerði 1-1 jafntefli gegn Djurgarden í kvöld.
Fyrir tímabil var talað um að framtíð Helga væri í óvissu en hann sýndi mikilvægi sitt inni á vellinum og hefur átt fast sæti í liðinu.
Fyrir tímabil var talað um að framtíð Helga væri í óvissu en hann sýndi mikilvægi sitt inni á vellinum og hefur átt fast sæti í liðinu.
Fyrr í dag gerðu Gefle og Gautaborg einnig jafntefli 1-1.
AIK er sem stendur í sjöunda sæti en Djurgarden náði að lyfta sér upp úr neðsta sætinu með þessu stigi. Helsingborg er í efsta sæti með 22 stig, stigi á undan Gautaborg.
