Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
banner
   mið 22. maí 2013 11:47
Magnús Már Einarsson
Taarabt ítrekað sektaður - Neitaði að stíga á vigtina
Adel Taarabt, leikmaður QPR, hefur fengið nokkrar sektir frá félaginu undanfarnar vikur en samtals hefur hann verið sektaður fyrir yfir 60 þúsund pund.

Taarabt hefur ítrekað mætt of seint á æfingar og þá neitaði hann að stíga á vigtina hjá félaginu á dögunum þegar kanna átti þyngd hans.

Marokkómaðurinn missti af síðasta leik tímabilsins gegn Liverpool um helgina þar sem hann var farinn heim í jarðarför hjá ömmu sinni.

Taarabt hefur oft komist í vandræði á ferli sínum hjá QPR en hann var meðal annar sektaður árið 2011 fyrir að fara beint heim eftir að hafa verið skipt af velli í leik gegn Chelsea.
Slapp
banner
banner