Líkt og síðustu ár gerir Fótbolti.net upp umferðir Pepsi-deildarinnar á skemmtilegan hátt. Þetta er allt til gamans gert. Fjórða umferðin var leikin á mánudag og þriðjudag og voru flestir leikirnir jafnir og spennandi.
Einkenni umferðarinnar: Vítaklúður
Jóhann Birnir, Viðar Kjartans og Árni Vilhjálms klúðruðu allir vítaspyrnum í umferðinni. Vítið hans Árna vakti mesta athygli enda í stórleik Breiðabliks og FH þar sem hann hefði getað jafnað í blálokin en tók arfaslaka spyrnu. Annað vítið sem Blikar klúðra á mótinu og ljóst að Óli Kristjáns þarf að finna vítaskyttu liðsins.
Áhorfandi umferðarinnar: Alexander Scholz
Það var vel tekið á móti Alexander Scholz í Garðabænum en þessi frábæri leikmaður lék með Stjörnunni í fyrra en er nú hjá Lokeren í Belgíu. Þessi mikli Íslandsvinur mætti á leik Stjörnunnar og Vals og gaf Silfurskeiðinni Lokeren-treyju.
Leikur umferðarinnar: Keflavík 2 - 2 Fylkir
Fjögur mörk, mikil spenna, rautt spjald og tvær vítaspyrnur sem fóru í súginn. Þeir sem lögðu leið sína í Keflavík fengu ansi fjörugan leik. Þrátt fyrir að vera manni færri stóran hluta voru Keflvíkingar ekki síðra liðið. Fylkir ekki sannfærandi í upphafi tímabils.
Gæðaleysi umferðarinnar: Þór - Víkingur Ó.
Leikur nýliðanna minnti víst alls ekki á Pepsi-deildarleik að sögn þeirra sem hann sáu. Lélegar vallaraðstæður hafa líklega eitthvað spilað inn í.
Fjall umferðarinnar: Staða Ólafsvíkinga
Stigalausir eftir fjórar umferðir og mæta ÍBV, Breiðabliki, FH og KR í næstu fjórum leikjum. Verður liðið stigalaust að loknum átta umferðum eða fáum við óvænt úrslit í næstu umferðum?
Þjálfari umferðarinnar: Rúnar Kristinsson
KR-ingar skelltu sér til Vestmannaeyja og unnu þægilegan og öruggan sigur gegn liði ÍBV sem var taplaust fyrir leikinn. KR-ingar hafa byrjað tímabilið fullkomlega og eru með fullt hús stiga.
Léttir umferðarinnar: Skagamenn
Framarar sáu um að sækja í fyrri hálfleik gegn ÍA en Skagamenn nýttu sín færi og tóku stigin þrjú, þeirra fyrstu stig.
Mark umferðarinnar: Bjarni Ólafur Eiríksson
Bjarni Ólafur jafnaði fyrir Val gegn Stjörnunni með flottu marki, tók boltann á lofti. 1-1 urðu svo lokatölurnar.
Sóknarmaður umferðarinnar: Hemmi Hreiðars
Hermann Hreiðarsson var óánægður með gang mála gegn KR og setti sjálfan sig inn í fremstu víglínu. Með baráttuna og viljann að vopni tókst honum þó ekki að snúa við dæminu. Orð fá ekki lýst tilburðum Hemma og ætlum við ekki að reyna að lýsa þessu.
Bull umferðarinnar: Allir andstæðingar jafn erfiðir
Nánast allir þjálfarar deildarinnar tala stöðugt um það að allir leikir deildarinnar séu eins erfiðir þegar þeir eru spurðir út í næsta leik. Það er ekki jafn erfitt að heimsækja Kaplakrika eða Frostaskjól og að fá Víking Ólafsvík í heimsókn. Þetta vita þjálfarar og mega fara að minnka klisjurnar.
Ekki lið umferðarinnar:
Ekkert lið fékk skell í þessari umferð svo erfiðara var að velja Ekki liðið en oft áður.
Ögmundur (Fram)
Andri Fannar (Keflavík) - Luba (Víkingur) - Davíð Þór (Fylkir)
Eldar Masic (Víkingur) - Árni Freyr (Fylkir) - Viktor (Fram) - Atli (Stjarnan)
Arnar Sveinn (Valur) - Lennon (Fram) - Kristinn Ingi (Fram)
Umdeilt atvik umferðarinnar: Rauða spjaldið á Andra
Andri Fannar Freysson, leikmaður Keflavíkur, fékk brottvísun en margir vilja meina að hann hafi farið beint í boltann og ekki ekki brotið af sér og dómurinn því verið rangur.
Dómari umferðarinnar: Þóroddur Hjaltalín
Dómaratríóið í leik ÍA og Fram fær þessi eftirsóttu verðlaun að þessu sinni.
Æla umferðarinnar: Atli Sigurjónsson
Sjá frétt



