Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
banner
   mið 22. maí 2013 21:32
Ívan Guðjón Baldursson
Heimild: Inside Spanish Football 
Verið að semja um kaupverð á Isco
Starfsmenn Malaga eru í Madríd að semja um sölu á gríðarlega eftirsóttum leikmanni liðsins, Isco.

Isco er fæddur 1992 og eru stærstu félög Evrópu á höttunum eftir honum en hann er í óheppnu Malaga liði sem skuldar peninga og er í banni frá Evrópukeppnum vegna fjármála.

Samkvæmt fréttamiðlum á Spáni var Mario Husillos, yfirmaður íþróttamála hjá Malaga, í Madríd ásamt föður og umboðsmanni Isco til að ræða um kaup á leikmanninum.

Malaga vill 35 milljónir evra fyrir leikmanninn en Real vill borga minna og bjóða tvo leikmenn sína upp í kaupverðið, þeirra á meðal ungstirnið Jese.

Francisco Martin Aguilar, yfirmaður hjá Malaga, viðurkenndi að Real Madrid væri næst því að fá Isco til sín en Manchester City og Monaco hefðu einnig sýnt áhuga.
Slapp
banner