Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   mán 22. maí 2017 21:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Bakayoko: Gæti ekki farið frá Mónakó til PSG
Bakayoko er ekki að fara til PSG, það er á hreinu!
Bakayoko er ekki að fara til PSG, það er á hreinu!
Mynd: Getty Images
Tiemoue Bakayoko, miðjumaður Mónakó, hefur útilokað félagsskipti til Paris Saint-Germain, hann er alls ekki að fara þangað!

Bakayoko var lykilmaður er Mónakó varð franskur meistari á þessu tímabili. Hann vill ekki fara í lið sem endaði neðar en Mónakó.

Mónakó vakti athygli Evrópu fyrir vasklega frammistöðu í Meistaradeildinni og þeirra bestu leikmenn eru í sigtinu hjá stærstu liðum Evrópu. Chelsea og PSG hafa áhuga á Bakayoko, en það er ekki í plönunum hjá honum að fara til Parísar.

„Ég get ekki farið frá Mónakó til PSG," sagði Bakayoko.

„Það er ómögulegt, vegna þess að ég varð meistari á undan París. Ég get ekki farið til liðs sem var á eftir mér."
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner