„Fyrri hálfleikurinn átti að vera 5-3 eða eitthvað," sagði Sigurbjörn Hreiðarsson, aðstoðarþjálfari Vals, eftir 2-1 sigur liðsins á KR í kvöld.
Fjölmörg færi litu dagsins ljós í leiknum og mörkin hefðu auðveldlega getað orðið fleiri. Kristinn Ingi Halldórsson fór meðal annars illa með tvö dauðafæri í fyrri hálfleiknum.
Fjölmörg færi litu dagsins ljós í leiknum og mörkin hefðu auðveldlega getað orðið fleiri. Kristinn Ingi Halldórsson fór meðal annars illa með tvö dauðafæri í fyrri hálfleiknum.
Lestu um leikinn: Valur 2 - 1 KR
„Það var léttur krummi tvisvar. Hann vann mjög vel fyrir liðið og stóð sig vel í þessum leik. Hann hefði getað nýtt þessi færi en við eigum það bara inni," sagði Sigurbjörn.
Valur var 2-0 yfir í hálfleik en KR minnkaði muninn úr vítaspyrnu þegar rúmar tíu mínútur voru eftir. Sigurbjörn viðurkennir að hann hafi ekki verið rólegur síðustu mínúturnar.
„Þeir eru baneitraðir og með hörkuleikmenn. Þegar þú ert einu yfir þá getur þú fengið víti á þig eða eitthvað. Þeir voru aggressívir en við stóðum það af okkur. Ég get alveg viðurkennt að ég hugsaði 'fjandinn, það er mikið eftir' en við stóðumst þetta."
Hér að ofan má sjá viðtalið í heild sinni.
Athugasemdir