Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mán 22. maí 2017 23:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Dolberg handleggsbraut stuðningsmann
Mynd: Getty Images
Kasper Dolberg er leikmaður sem Manchester United þarf að hafa áhyggjur af fyrir úrslitaleik Evrópudeildarinnar á miðvikudag. Dolberg er leikmaður sem hefur verið að gera mjög góða hluti með Ajax.

Stuðningsmenn Man Utd þurfa líka að vera áhyggjufullir, en þessi danski leikmaður handleggsbraut stuðningsmann á dögunum.

Atvikið átti sér stað fyrir leik Ajax gegn Willem II í lokaumferð hollensku úrvalsdeildarinnar. Dolberg skaut þá bolta upp í stúku með þeim afleiðingum að stuðningsmaðurinn handleggsbrotnaði.

Ajax ætlar að bæta stuðningsmanninum þetta.

Dolberg, sem hefur skorað 23 mörk á tímabilinu, verður í eldlínunni þegar Ajax leikur gegn Man Utd í úrslitaleik Evrópudeildarinnar á miðvikudag. Leikurinn fer fram í Stokkhólmi.

Hér að neðan má sjá það sem stuðningsmaðurinn setti á Twitter.



Athugasemdir
banner
banner
banner