Gunnlaugur Jónsson, þjálfari ÍA, var skiljanlega svekktur eftir 3-2 tap gegn nýliðum Grindavíkur í Pepsi-deild karla í kvöld.
Skagamenn hafa farið skelfilega af stað í deildinni og sitja á botninum eftir fjögur töp í fjórum leikjum.
Skagamenn hafa farið skelfilega af stað í deildinni og sitja á botninum eftir fjögur töp í fjórum leikjum.
Lestu um leikinn: ÍA 2 - 3 Grindavík
„Ég er ósáttur með að fá ekkert út úr þessu, en því miður erum við að fá á okkur mörk á erfiðum tímum," sagði Gunnlaugur.
Garðar Gunnlaugsson fékk tækifæri til þess að koma ÍA yfir rétt fyrir leikhlé, en hann klúðraði vítaspyrnu. Gunnlaugur var spurður út í það og svar hans var létt og laggott.
„Það hefði að sjálfsögðu hjálpað," sagði hann.
Í sjónvarpinu að ofan má sjá viðtalið í heild sinni.
Athugasemdir