Kaylor Navas, markvörður Real Madrid, rakaði allt hárið af sér eftir að Madrídingar unnu spænska meistaratitilinn í gær.
Navas hélt hreinu þegar Real vann 2-0 sigur á Malaga í lokaleik sínum í deildinni, en sigurinn færði þeim sinn fyrsta deildarititil í fimm ár.
Navas hélt hreinu þegar Real vann 2-0 sigur á Malaga í lokaleik sínum í deildinni, en sigurinn færði þeim sinn fyrsta deildarititil í fimm ár.
Hinn þrítugi Navas var búinn að raka allt hárið af sér þegar hann ræddi við blaðamenn eftir sigurinn í gær, en hann sagðist tileinka titilinn þeim sem berjast við krabbamein og fjölskyldum þeirra.
„Ég bið til guðs fyrir alla þá sem berjast við krabbamein, að þeir geti jafnað sig af sjúkdómnum," sagði Navas.
„Fyrir öll börnin sem berjast við krabbamein. Fyrir fjölskyldur þeirra, fyrir þá sem halda áfram að berjast. Þessi titill er fyrir þau."
Keylor Navas dedicates the La Liga title win to his family and dedicates shaving his head to children suffering from cancer.
— Pro:Direct Keepers (@ProD_Keepers) May 22, 2017
Respect. 👏 pic.twitter.com/wqneP78QBN
Athugasemdir