Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mán 22. maí 2017 08:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Mirror: Liverpool að kaupa Demarai Gray á 12 milljónir
Demarai Gray er orðaður við Liverpool.
Demarai Gray er orðaður við Liverpool.
Mynd: Getty Images
Jurgen Klopp, stjóri Liverpool, færist nær kaupum á kantmanninum Demarai Gray frá Leicester. Þetta kemur fram hjá Mirror.

Samkvæmt fréttinni er Liverpool að kaupa hann á 12 milljónir punda.

Gray er orðinn pirraður á bekkjarsetu hjá Leicester og gæti verið á förum í sumar. Hann skoðar nú aðra möguleika.

Liverpool er áhugasamt, sem og nágrannar þeirra í Everton. Tottenham, sem endaði í öðru sæti ensku úrvalsdeildarinnar, fylgist einnig með stöðu mála hjá leikmanninum.

Liverpool ætlar sér að fá hann og þegar félagsskiptagluggin opnar í júlí ætla þeir að virka riftunarákvæðið í samningi hans.

Leicester keypti Gray á 3,5 milljónir punda frá Birmingham fyrir 18 mánuðum, en Liverpool þarf að borga fyrir hann 12 milljónir.
Athugasemdir
banner
banner