Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   mán 22. maí 2017 18:52
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Tveir leikmenn Sunderland neituðu að spila
Lamine Kone.
Lamine Kone.
Mynd: Getty Images
Michael Gray, fyrrum leikmaður Sunderland, hefur heimildir fyrir því að tveir leikmenn liðsins hafi neitað að spila gegn Chelsea í gær.

Sunderland tapaði 5-1 gegn Chelsea í lokaumferð ensku úrvalsdeildarinnar, en liðið var fyrir löngu fallið.

Fyrr í dag sagði David Moyes starfi sínu lausu hjá félaginu, sem mun spila í Championship-deildinni á næstu leiktið. Ljóst er að það eru mörg vandamál sem nýr stjóri þarf að taka strax á.

„Já, þeir gerðu það (neituðu að spila), sem mér finnst mjög skrýtið þegar þú ert með samning hjá fótboltaliði," sagði Gray.

„Þetta hefur ekkert með David (Moyes) að gera, ef leikmennirnir fara til hans og segjast ekki vilja spila, þá eiga þeir ekki skilið að vera hjá félaginu," sagði Gray enn fremur.

„Annar þeirra var Lamine Kone. Ég er ekki alveg viss hver hinn leikmaðurinn er."
Athugasemdir
banner
banner