Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   þri 22. maí 2018 19:07
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Danmörk: Eggert féll úr leik en Björn var ekki með
Eggert Gunnþór Jónsson.
Eggert Gunnþór Jónsson.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Eggert Gunnþór Jónsson lék allan leikinn þegar Sönderjyske tapaði 2-0 á heimavelli fyrir AGF í dönsku úrvalsdeildinni.

Tapið þýðir það að Sönderjyske á ekki lengur möguleika á Evrópusæti. AGF spilar hins vegar úrslitaleik við annað hvort Nordsjælland eða FC Kaupmannahöfn um sæti í Evrópudeildinni.

Fyrri leikur Sönderjyske og AGF hafði endað í 2-2 jafntefli. Sönderjsyske var því í kjörstöðu fyrir leikinn í kvöld, en nýtti sér hana ekki og tapaði 2-0.

AGF komst yfir stuttu fyrir leikhlé og í upphafi seinni hálfleiksins varð forystan tvöfölduð.

Björn Daníel Sverrisson var ekki í leikmannahópi AGF í kvöld.
Athugasemdir
banner
banner
banner