Yannick Bolasie stefnir á að snúa aftur á fótboltavöllinn fyrir jól.
Bolasie, sem er kantmaður Everton, hefur ekki spilað fótboltaleik síðan í desember, en þá meiddist hann illa gegn Manchester United.
„Það væri besta jólagjöfin fyrir mig að snúa aftur í desember. Ég vil alltaf vera á vellinum," sagði Bolasie.

Bolasie kom til Everton frá Crystal Palace fyrir metfé síðasta sumar og spilaði 13 leiki fyrir félagið áður en hann meiddist svo.
Þegar hann meiddist óttuðust margir að ferilinn myndi aldrei komast aftur á flug, en hann stefnir auðvitað á að snúa sem fyrst á fótboltavöllinn og ná sér aftur á strik.
Athugasemdir