fös 22. júní 2018 22:35
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
2. deild kvenna: Völsungur tók sigurinn
Minnsta tap Hvíta Riddarans í sumar
Völsungur vann sinn annan sigur í sumar.
Völsungur vann sinn annan sigur í sumar.
Mynd: Aðsend
Hvíti Riddarinn 0 - 2 Völsungur
0-1 Hulda Ösp Ágústsdóttir ('49)
0-2 Marta Sóley Sigmarsdóttir ('90)

Það var einn leikur í 2. deild kvenna í kvöld og fór hann fram í Mosfellsbæ. Hvíti Riddarinn fékk Völsung í heimsókn.

Hvíti Riddarinn hefur ekki riðið feitum hesti í sumar og tapað öllum leikjum sínum stórt. Í kvöld náðu þær að halda hreinu í fyrri hálfleik, en í seinni hálfleik komu mörkin hjá gestunum. Hulda Ösp Ágústsdóttir gerði fyrra mark leiksins og í uppbótartímanum bætti Marta Sóley Sigmarsdóttir við.

Þetta er annar sigur Völsungs í 2. deildinni í sumar, liðið er með sex stig í fimmta sæti af átta liðum. Hvíti Riddarinn er án stiga eftir fyrstu fjóra leiki sína í deildinni.

Markaskorarar af urslit.net
Athugasemdir
banner
banner
banner