Fótbolti.net fékk íþróttafréttamanninn Hjört Hjartarson til að fara yfir byrjunarliðið sem mætir Nígeríu klukkan 13:00.
Heimir Hallgrímsson, landsliðsþjálfari, hefur ákveðið að byrja í 4-4-2 í dag og Hjörtur fagnar því.
Jón Daði Böðvarsson og Rúrik Gíslason koma inn í liðið en Emil Hallfreðsson og hinn meiddi Jóhann Berg Guðmundsson detta út.
Hjörtur ræddi um breytingarnar, Emil, nígeríka liðið og fleira í viðtalinu sem fylgir fréttinni.
Hjörtur spáir að Ísland vinni 2-1 og Jón Daði og Gylfi Þór Sigurðsson skori mörkin.
Sjáðu spjallið hér í fréttinni.
Smelltu hér til að sjá beina textalýsingu frá Rússlandi
Athugasemdir