Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   fös 22. júní 2018 10:30
Ingólfur Páll Ingólfsson
Morata til Dortmund og Golovin til Juventus?
Powerade
Mynd: Getty Images
Mynd: Getty Images
Mynd: Getty Images
Það er risaleikur á dagskrá í dag þegar Ísland mætir Nígeríu. En kíkjum á slúðrið sem BBC hefur tekið saman.



Borussia Dortmund hafa áhuga á að semja við Alvaro Morata (25), leikmann Chelsea en 45 milljón punda verðmiði gæti fælt þýska félagið frá. (Bild)

Jordi Alba (29) segir að hann vilji verið áfram hjá Barcelona í kjölfar fregna um áhuga Tottenham á leikmanninum. (Goal)

Tottenham vonast til þess að semja við Ante Rebis (24), vængmann Eintracht Frankfurt og Króatíska landsliðsins. Talið er að leikmaðurinn sé fáanlegur á 26.3 milljónir punda. (Bild)

Juventus er líklegastir til þess að semja við Aleksandr Golovin (22), leikmann CSKA Moskvu og rússneska landsliðsins en Arsenal, Chelsea og Barcelona eru líka áhugasöm. (Tuttosport)

Liverpool nálgast kaup á Thomas Strakosha (23), leikmanni Lazio og Albaníu. (Mirror)

Manchester United er að íhuga að bjóða í Tanguy Ndombele (21), miðjumann Lyon í Frakklandi. (Le10 Sport)

Aston Villa eiga enn eftir að fá tilboð í Jack Grealish þrátt fyrir áhuga frá Tottenham og Liverpool. (Birmingham Mail)

Everton gæti boðið Middlesbrough að fá Mo Besic (25) sem hluta af kaupverði á Ben Gibson (25), varnarmanni Middlesbrough. (Northern Echo)

Arsenal verður í baráttu við AC Milan og Marseille um Miguel Layun (29), varnarmann Porto, fari svo að hann semji ekki við Sevilla þar sem hann var á láni á síðasta tímabili. (AS)

Mousa Dembele (30), miðjumaður Tottenham segist elska ævintýri og hefur rætt við félaga sína í landsliðinu um að spila í Kína og MSL deildinni. (Goal)

Fenerbache hafa opnað viðræður við Chelsea um kaup á Marco Van Ginkel. (Talksport)

Crystal Palace og Bournemouth eru bæði að íhuga tilboð í Declan Rice, varnarmann West Ham. Þessi 19 ára gamli leikmaður á enn eftir að samþykkja nýjan samning við Hamrana. (Sun)

Stoke hefur lagt fram fimm miljón punda tilboð í Paddy McNair(23), varnarmann Sunderland. (Mail)

Dusan Tadic (29), nálgast félagsskipti til Ajax en viðræður eru ennþá í gangi. (Daily Echo)

Leeds United er áhugasamt um að fá Matej Vydra (26), framherja Derby County til liðsins. (Derby Telegraph)










Athugasemdir
banner
banner