Tvö mörk frá Ahmed Musa gerðu Nígeríu kleift að leggja Ísland að velli á HM í Rússlandi í dag. Nú er Nígería komið í annað sæti D-riðils með þrjú stig á meðan Ísland og Argentína eru með eitt stig. Úrslitin munu ráða í lokaumferðinni þar sem Ísland spilar við Króatíu og Argentína etur kappi við Nígeríu.
Wilfred Ndidi, leikmaður Leicester City, átti flottan leik á miðjunni hjá Nígeríu í Volgograd.
Wilfred Ndidi, leikmaður Leicester City, átti flottan leik á miðjunni hjá Nígeríu í Volgograd.
Eftir leik tileinkaði hann Nígeríubúum sigurinn.
„Þetta er fyrir 180 milljónir Nígeríubúa," skrifaði Ndidi ánægður með sigurinn.
This is for the 180 million Nigerians 🇳🇬🙏🏻 #FIFAWorldCup2018Russia pic.twitter.com/gGJjSwSuZ0
— Ndidi Wilfred (@Ndidi25) June 22, 2018
Athugasemdir