Svava Rós Guðmundsdóttir skoraði tvennu þegar lið hennar Roa komst áfram í norska bikarnum í vikunni.
Roa gjörsamlega valtaði yfir 1. deildarlið Byasen í 16-liða úrslitum. Lokatölurnar urðu 11-0 fyrir Roa, hvorki meira né minna.
Svava skoraði þriðja og fimmta mark Roa í leiknum.
Roa gjörsamlega valtaði yfir 1. deildarlið Byasen í 16-liða úrslitum. Lokatölurnar urðu 11-0 fyrir Roa, hvorki meira né minna.
Svava skoraði þriðja og fimmta mark Roa í leiknum.
Roa er komið áfram í 8-liða úrslit bikarsins, en liðið er sem stendur í níunda sæti norsku úrvalsdeildarinnar af 12 liðum.
Svava Rós er á sínu fyrsta tímabili í Noregi eftir að hafa komið frá Breiðabliki í janúar síðastliðnum. Svava á 11 A-landsleiki fyrir Ísland.
Athugasemdir