Stjarnan er í frábærri stöðu í Pepsi-deild kvenna en Íslandsmeistararnir hafa sjö stiga forystu eftir 1-0 sigur gegn Breiðabliki í toppslag í kvöld.
Blikakonum mistókst að komast upp í annað sæti deildarinnar en eina markið í kvöld skoraði Harpa Þorsteinsdóttir úr vítaspyrnu sem hún krækti í sjálf.
SportTv.is sýndi leikinn í beinni og má sjá svipmyndir úr honum í sjónvarpinu hér að ofan.
Athugasemdir