fös 22. júlí 2016 21:07
Arnar Daði Arnarsson
Laugardalsvelli
Inkasso: Juraj lagði upp tvö í sigri KA
Almarr skoraði fyrir KA í kvöld.
Almarr skoraði fyrir KA í kvöld.
Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson
Fram 1-3 KA
0-1 Guðmann Þórisson (´24)
0-2 Almarr Ormarsson (´45)
1-2 Indriði Áki Þorláksson (´61 víti)
1-3 Elfar Árni Aðalsteinsson (´83 víti)

KA heldur áfram á þvílíku flugi í Inkasso-deildinni með 3-1 sigri á Fram á Laugardalsvellinum í kvöld.

Guðmann Þórisson kom KA yfir eftir tæplega hálftíma leik með skalla marki og í uppbótartíma fyrri hálfleiks bætti Almarr við öðru marki einnig með skalla. Bæði mörkin lagði Juraj Grizelj upp.

Indriði Áki minnkaði muninn fyrir Fram eftir klukkutíma leik með marki úr víti en það var síðan Elfari Árni Aðalsteinsson sem innsiglaði sigur KA með marki úr víti sem hann fiskaði sjálfur á 83. mínútu leiksins.

KA er því enn á toppi Inkasso-deildarinnar með 29 stig að loknum tólf leikjum. Fram er í 8. sæti með 13 stig.
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner
banner
banner