fös 22. júlí 2016 15:06
Magnús Már Einarsson
Sam Allardyce: Besta starfið í enska boltanum
Mynd: Getty Images
„Ég er gríðarlega stoltur af því að hafa verið ráðinn landsliðsþjálfari Englands, sérstaklega þar sem þetta er staða sem ég hef alltaf viljað," sagði Sam Allardyce í dag.

Allardyce er tekinn við enska landsliðinu en hann gerði tveggja ára samning við enska knattspyrnusambandið.

„Að mínu mati er þetta besta starfið sem hægt er að fá í enska fótboltanum."

„Ég ætla að gera allt sem ég get til að hjálpa enska landsliðinu að standa sig vel og þjóðin og stuðningsmenn fái þann árangur sem þeir eiga skilið."

„Fyrst og fremst verðum við að gera fólkið í landinu stolt af okkur."

Athugasemdir
banner
banner
banner