Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fös 22. júlí 2016 13:49
Magnús Már Einarsson
Steve Bruce hættur hjá Hull (Staðfest)
Mynd: Getty Images
Steve Bruce er hættur sem stjóri Hull City en bæði BBC og Sky greina frá þessu.

Bruce leiddi Hull upp í ensku úrvalsdeildina í vor en hann er nú hættur, þremur vikum fyrir byrjun deildarinnar.

Hull hefur verið til sölu undanfarin tvö ár og óvissa ríkir hjá félaginu. Bruce hefur ekki fengið að kaupa leikmenn í sumar og einungis þrettán leikmenn í leikmannahópi Hull eru heilir heilsu í dag.

Bruce var í starfsviðtali hjá enska knattspyrnusambandinu í síðustu viku fyrir enska landsliðið.

Sam Allardyce fékk starfið hjá enska landsliðinu en Bruce gæti nú tekið við Sunderland af honum. Bruce stýrði áður Sunderland frá 2009 til 2011.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner