Hver tekur við af Klopp? - Dani Olmo orðaður við Man Utd - Greenwood í skiptum fyrir Gleison Bremer
banner
   fös 22. júlí 2016 17:00
Fótbolti.net
Stiagahæstur í 12. umferð fær harðfisk frá Eyjabita
Mynd: Eyjabiti
Garðar Gunnlaugs hefur skilað mikið af stigum undanfarið.
Garðar Gunnlaugs hefur skilað mikið af stigum undanfarið.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Um helgina fer fram 12. umferðin í Draumaliðsdeild Fótbolta.net og Eyjabita. Stigahæsta liðið í komandi umferð fær harðfisk í verðlaun frá Eyjabita!

Smelltu hér til að taka þátt í leiknum!

Markaðurinn er opinn til klukkan 16:00 á sunnudag, klukkutíma áður en fyrsti leikur í 12. umferð fer fram.

12. umferð:

Sunnudagur:
17:00 ÍA-ÍBV
19:15 Fjölnir-Valur
19:15 Víkingur Ó.-Breiðablik
19:15 FH-Þróttur R.
20:00 Fylkir-Stjarnan

Mánudagur:
20:00 Víkingur R.-KR

Er kominn tími á að nota wildcardið?
Ein frí skipting er í boði á milli umferða en einnig er hægt að nota Wildcard einu sinni á tímabili. Wildcard gerir þér kleift að gera ótakmarkaðar ókeypis skiptingar í einni umferð.

Til að nota wildcardið þá stillirðu einfaldlega upp þeim breytingum sem þú vilt gera á markaðnum. Til að staðfesta breytingarnar smellirðu svo á "Nota wildcard" í stað þess að ýta á "Staðfesta kaup". Við þetta strokast út þau mínusstig sem fengist hefðu fyrir breytingarnar.

Eftir að wildcard hefur verið virkjað er hægt að gera ótakmarkaðar breytingar þar til næsta umferð byrjar.

Kíktu á liðið þitt og notaðu Wildcardið fyrir síðari hluta sumars!
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner