Huginn 2 - 2 Afturelding
1-0 Gonzalo Zamorano Leon ('52)
1-1 Ágúst Leó Björnsson ('55)
2-1 Milos Ivankovic ('59)
2-2 Wentzel Steinarr Ragnarsson Kamban ('61)
1-0 Gonzalo Zamorano Leon ('52)
1-1 Ágúst Leó Björnsson ('55)
2-1 Milos Ivankovic ('59)
2-2 Wentzel Steinarr Ragnarsson Kamban ('61)
Huginn fékk Aftureldingu í heimsókn í fyrsta leik dagsins í 2. deild karla, en leiknum var að ljúka núna fyrir stuttu.
Bæði lið vildu vinna til þess að halda í við efstu liðin.
Fyrri hálfleikurinn var markalaus, en liðin blésu til markaveislu á fyrsta stundarfjórðungnum í seinni hálfleik.
Huginn komst yfir, Afturelding jafnaði, Huginsmenn komust aftur yfir áður Wentzel Steinarr R Kamban tók málin í sínar hendur. Hann skoraði glæsilegt mark, af 35 metrum með skoti í slána og inn!
Eftir þessa veislu voru mörkin ekki fleiri og lokatölur 2-2. Huginn er með 24 stig í þriðja sæti og Afturelding hefur 20 stig í fimmta sæti.
Athugasemdir