Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
Jökull: Þeir voru frábærir - Við áttum kannski ekkert skilið úr þessum leik
Hetja HK kíkir ekkert niður í bæ: Ekkert mikið að gera þar miðað við í London
Hrannar Bogi eftir hetjulega frammistöðu Augnabliks: Við nálgumst leiki alltaf alveg eins
Fékk afmælisgjöf fyrir leikinn: Ég fékk Þróttaratrefil og nokkrar Stellur
Nýir tímar í Laugardalnum - „Finnst bara tilvalið að með því fylgi nýtt merki“
Haukur Páll: Ekki spurning um að koma mönnum fyrir
Heimir Guðjóns: Hefði verið gult spjald í fyrra
Gylfi Þór: Skrítið að spila gegn liði sem ég var hjá í 10 ár
Úlli: Fékk held ég nóg af liðsfélögum sínum
Bjarni Jó: Nýttum færin okkar illa
Gunnar Magnús: Alsæll þrátt fyrir að það hafi endað í jafntefli
Ólafur Kristjáns: Ekki hægt að gera neitt við því núna
Kristján Guðmunds: Munum rífa okkur í gang eftir þetta
John Andrews: Gæti ekki verið stoltari
Nik: Vigdís hefur staðið sig vel sem framherji
Glenn: Komum hingað með því hugarfari að vinna leikinn
Vigdís Lilja: Ætla að spila frammi í sumar og skora eins mikið og ég get
Sáttur Arnar Gunnlaugs: Erum að senda ágæt skilaboð til liðanna í deildinni
Höskuldur brattur eftir leik: Maður verður að jafna sig hratt á þessu
Elskar stóru leikina - „Vona að fólk viti að þeir kitla mig.“
   lau 22. júlí 2017 14:20
Arnar Daði Arnarsson
Ásthildur Helga: Núna getur maður fengið sér einn öl
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fyrrum fyrirliði íslenska kvennalandsliðsins, með 23 mörk í 69 landsleikjum Ásthildur Helgadóttir er mætt til Hollands að fylgjast með íslenska landsliðinu á EM í Hollandi.

Hún var mætt á Fan-Zone-ið fyrir leik Íslands og Sviss sem hefst klukkan 16:00 á íslenskum tíma í dag.

„Það er bara æðislegt. Þetta er mjög gott núna getur maður fengið sér einn öl, það er bara jákvætt. Annars væri ég alveg til í að vera spila," sagði Ásthildur sem er að fylgjast með á staðnum á sínu fyrsta stórmóti hjá kvennalandsliðinu en hún var einnig á leiknum í Tilburg á þriðjudaginn.

„Ég hef fylgst mjög vel með í sjónvarpinu og ekki haft tök á því að vera á staðnum eins og núna. Við erum komin með þrjú börn og núna eru þau bara með."

„Við settum aðeins tóninn í fyrra þegar strákarnir voru að spila. Auðvitað var maður að vonast eftir því að við myndum fjölmenna á þetta mót. Svo gerðist það, sem er frábært og það er æðislegt að fá fólkið með," sagði Ásthildur sem er ánægð með framþróun íslenska kvennalandsliðsins síðustu ár.

„Á þessum fjórtán árum sem ég spilaði með landsliðinu þá var þetta stöðug barátta að fá fólkið með okkur og auglýsa hvað við vorum góðar og að við gætum eitthvað. Núna er þetta allt að koma og það er æðislegt að sjá."

„Mér líst vel á leikinn á eftir gegn Sviss. Ég hef fulla trú á stelpunum. Þetta er mjög erfiður andstæðingur en ég hef fulla trú á að við getum unnið þetta lið. Ég held að við gerum það," sagði Ásthildur sem átti erfitt með að gera upp á milli stelpnanna í liðinu.

„Mér finnst þær allar æðislegar," sagði Ásthildur að lokum.

Viðtalið í heild sinni má sjá í sjónvarpinu hér að ofan.

Fótbolti.net er með öflugt teymi í Hollandi og er hægt að fylgjast með öllu bak við tjöldin á Snapchat (Fotboltinet), á Instagram og öðrum samskiptamiðlum okkar.

Leikir Íslands á EM:
Ísland 0-1 Frakkland
Ísland 1-2 Sviss
Ísland 0-3 Austurríki
Athugasemdir
banner
banner