Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
banner
   lau 22. júlí 2017 11:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Darren Randolph á leið til Middlesbrough
Mynd: Getty Images
Markvörðurinn Darren Randolph hefur greinilega fengið fréttir um það að hann muni ekki mikið spila fyrir West Ham á komandi tímabili. Joe Hart var fenginn á dögunum frá Manchester City og nú hefur Randolph ákveðið að færa sig um set.

Randolph er á leið til Middlesbrough, en Boro hefur komist að samkomulagi við West Ham um kaupverð.

Nú á leikmaðurinn aðeins eftir að fara í læknisskoðun og skrifa undir samning hjá félaginu. Hann mun væntanlega gera það síðar í dag.

Victor Valdez og Brad Guzan fóru báðir frá Middlesbrough eftir að tímabilið kláraðist.

Randolph er írskur landsliðsmaður, en á síðasta tímabili spilaði hann 22 leikjum fyrir West Ham.

Middlesbrough féll úr ensku úrvalsdeildinni á síðasta tímabili og mun spila í Championship-deildinni á næsta tímabili.
Athugasemdir
banner
banner