Barcelona vill Díaz frá Liverpool - Úlfarnir skoða markverði - City til í að hlusta á tilboð í Grealish
   lau 22. júlí 2017 16:46
Arnar Daði Arnarsson
Eiður Smári hrósar stoðsendingu Dagnýjar
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fandís Friðriksdóttir skoraði fyrsta mark Íslands á EM í Hollandi þegar hún kom liðinu yfir gegn Sviss eftir rúman hálftíma leik.

Staðan í leiknum í þessum töluðu orðum er 1-1, en Lara Dickenmann jafnaði metin fyrir Sviss.

Undirbúningur marks Íslands var frábær. Katrín Ásbjörnsdóttir vann boltann á miðjunni, sendi boltann á Dagnýju sem átti frábæra sendingu innfyrir vörn Sviss þar sem Fanndís kom á hlaupinu.

Enginn annar en Eiður Smári Guðjohnsen hrósaði sendingu Dagnýju á Twitter. Hægt er að sjá bæði tíst Eiðs sem og mark Fanndísar hér að neðan.







Fótbolti.net er með öflugt teymi í Hollandi og er hægt að fylgjast með öllu bak við tjöldin á Snapchat (Fotboltinet), á Instagram og öðrum samskiptamiðlum okkar.

Leikir Íslands á EM:
Ísland 0-1 Frakkland
Ísland 1-2 Sviss
Ísland 0-3 Austurríki
Athugasemdir
banner
banner